fimmtudagur, 25. júlí 2013

Flottur dagur

Flottur dagur í dag. Aðeins kaldari í dag heldur en í gær. Fór ekki yfir 16°C held ég.

Dró fyrir sólu um kl 16:00.
Nokkuð um heimsóknir og bara gaman af því.
Er ennþá að hanna þak skeggið hjá mér. Held að ég sé kominn að niðurstöðu hvernig ég ætla að hafa það.

Framlenging hjá Dönum og Normönnum sem ég ætla að horfa á.

miðvikudagur, 24. júlí 2013


Bara búið að vera frábær dagur. Sól og blíða.
Hitinn fór allavega í 21°C og 40,5°C á pallinnum hjá mér.
Var að vinna í þakskegginnu hjá mér og ætla að halda áfram á eftir.

mánudagur, 22. júlí 2013

Kominn í frí.

Handfangi á og svo bara fara að slá.



Jæja þá er þessari törn lokið og ég kominn í vaktar frí.
Þá er að fara í sláttuvélaviðgerð fékk nefnilega gefins sláttuvél sem var með smá gangtruflanir. Fann út hvað var að hrjá hana svo núna vantar mig handfangið á hana sem maður heldur í þegar maður er að slá. Held að ég fái handfangiðhjá Gámaþjónustunni af annari vél. Þetta var alltof góð og öflug vél til að fara bara með á haugana. Svo nú á ég 3,7 Hp sláttuvél og þurfti bara að leggja tvo tíma í vinnu til að fá hana í gang.....Bara magnað..

sunnudagur, 21. júlí 2013

Príma og Flóki á rjúpna veiðum.



Hér er myndbandið.

Kristinn og Pétur með Flóka og Prímu á rjúpnaveiðum.

Þar sem það styttist í að við getum farið á heiðina með hundana og þjálfað. 
Þá læt smá myndband fylgja með hérna til að stytta okkur stundir þangað til..
Það er af Kristni Einars með Prímu og Pétri með Flóka. Alveg æðislegt veður og frábær dagur fyrir alla bæði hunda og menn.

Nú er klukkan 03:05 og stittist í að vaktin taki enda.

Þetta er búinn að  vera nokkuð góð vakt en sem komið er. Horfði á hvalbát sigla inn Hvalfjörðinn í kvöld. Það er búið að ganga á með skúrum en samt ágætur hiti. Ég sé að hitin undir Hafnarfjallinnu er 15°C og ANA 15 m/s.. smá vindur þar. Held að hundarnir verði smá hamingjusamir þegar þeir  sjá mig í fyrramálið því þeir eru búnir að vera í gerðinu í 13 tíma þegar ég kem heim í fyrramálið. En það gerir þeim ekki neitt því þeir hafa stórt og gott gerði, þurt og gott hús með kojum og gnægt vatn og fengu nóg að borða rétt áður en ég fór á vaktinna. Ugla sem er 4 mánaða ensk setter tík er alveg ótrúlega skemmtilegur hvolpur og tík sem er mjög  hlíðin en samt mjög lifandi. Hlakka til að sjá hvernig hún verður þegar hún verður eldri.

Google+

Er að skoða þetta google+. Held  að það geti verið alveg frábært þegar maður hefur náð tökum á því. En finnst það samt smá svona flókið eins og er.